komin heim, reyndar búin að vera heima í einn sólahring en hverju skiptir það.
það er æðislegt að vera komin heim ég er búin að sakna þess að vera hérna og það er virkilega langt síðan ég hef verið hérna með engar áhyggjur ekkert að gera nema jú finna mér eitthvað að gera. í dag sat ég í tölvunni fiktaði í photoshop með hjálp netsíðunar sem thea benti mér á, ef einhver veit um aðrar endilega segja mér frá. Síðan fór ég út með brauðpoka og gaf hestunum mínum brauð varð síðan reið við þá vegna þess að þeir voru frekjur og reyndu að hlaupa á mig til þess að fá brauð. Svo lék ég mér aðeins við hundana mína, annar þeirra hrinti mér?
svooooo er ég BARA búin að borða góðan mat síðasta sólahringinn. nautakjöt og bernaise a la mamma (sólveig þú sást hvað ég elska það mikið).
mikið þykir mér gott að vera heima svona á milli anna.
síðan fer ég til rvk eftir tvo daga og ég hlakka svo til,allt þetta plan okkar.
"versla" á laugardaginn
footlose á laugardagskvöldið
sjopping á sunnudaginn
borganes á sunnudaginn
sveitinn hennar elsu á mánudaginn
sveitinn hennar elsu ennþá á þriðjudaginn
skólinn á miðvikudaginn
ætla að fara reyna hætta að hoppa af gleði yfir þessum 12 sæludögum mínum:)
ást til allra
RaggaÝr
p.s. Birkir hvar eru kommentinn?
ein mynd að lokum sem ég gerði í dag (veit að þetta er ekkert rosa en þetta er byrjun)
Jan 25, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

5 comments:
Heima er best..
Þetta er svo gott plan hjá okkur get ekki beðið eins og þú e.t.v. veist!
hey þú gleymdir.. laugardagur: kíkja á örnu myglu! ;)
en hey.. gott plan annars!
er að spá í því að breyta því fram á sunnudag kannski.
vildi hafa það svona opið!
en sé til:)
ég var upptekinn, engar áhyggjur samt
Post a Comment