Dec 18, 2007

jólakort

þar sem ég er alltaf svo sein að fatta að senda jólakort þá ætla ég bara að skrifa eitt hér:D

Gleðileg jól og farsælt komandi ár. þakka liðið.

Þetta var skemmtilegt og öðruvísi ár. útskrifaðist úr MA, bjó á Akureyri yfir sumarið, fluttist til Reykjvíkur. Allt eitthvað nýtt og skemmtilegt, viðurkenni alveg að mér líkaðiekkert sérstaklega vel við neitt af þessu svona í byrjun en svo núna þegar þetta er allt liðið þá er ég bara svona ágætlega ánægð með það sem ég ákvað að gera. hefði reyndar viljað kannski vera aðeins meira með fjölskyldunni í ár en til þess eru jólinn einmitt.

Svo held ég áfram ferð minni í það að reyna verða fullorðin og sjálfstæð manneskja fer til DK eftir áramót í Lýðháskóla en verð ekki lengi kem aftur í mars til íslands og verð þá í Reykjavík áfram í þessari frábæru vinnu sem ég er búin að finna mér. Ég á óneitanlega eftir að sakna litlu barnanna minna á Leikgarði en ég vona að þau verði ekki öll horfin á vit ævintýranna í nýjum leikskólum þegar ég kem aftur.

Takk þið öll fyrir árið sem liðið er og við höldum svo öll áfram að hittast næstu ár:)

og svo eitt jólamyndband af sjálfri mér í endann


Create Your Own GushyGram
Visit MushyGushy.com

Dec 10, 2007

jólagjafaóskalisti!

ég er komin með nokkra hluti sem mig langar í í jólagjöf.

plötuspilari

vesti

peysa

geisladiskar, bækur, föt, hlýir vettlingar, húfa, trefill, ullarsokkar, jahh eða smá fjárframlög fyrir vist mína úti eru einnig vel þegin:)